læknastöðin hamraborg

Við erum hér fyrir þig

Þjónusta

Öll helsta þjónusta kvensjúkdómalækninga og fæðingarhjálpar

Heilsuvera

Bóka tíma í gegnum heilsuveru

Forföll

Vinsamlega boðið forföll með skilaboðum í gegnum samskiptaformið fyrir kl 16 daginn fyrir komu.

Viðfangsefni

Í læknastöðinni Hamraborg er að finna tvo kvensjúkdómalækna í fullu starfi sem hafa vítt svið sérhæfingar

læknarnir

Jón Torfi Gylfason

 

B.Sc. próf í lífefnafræði frá Háskóla Íslands 1999. Kandídatspróf í læknisfræði frá Háskóla Íslands 2005. Íslenskt sérfræðileyfi í fæðingahjálp og kvensjúkdómum frá 2015 eftir sérnám í Noregi. Sjálfstætt starfandi læknir á Íslandi frá 2015. Aðalhöfundur ritrýndra vísindagreina á sviði Legslímuflakks (Endometriosis) og hlotið verðlaun og styrki í tenglum við þær.

Stundakennsla við Læknadeild Háskóla Íslands á námsárum (Legslímuflakk). Unnið við afleysingar víða á landsbyggðinni, bæði við heimilislækningar og kvensjúkdómalækningar.
Vinnur í dag í fullu starfi á Læknastöðinni, Hamraborg sem hann opnaði 2024. Sækir sér reglulega endurmenntun til að tileinka sér nýungar í faginu. Hefur annast skjólstæðinga Ólafs M. Haakanssonar, kvensjúkdómalæknis, eftir að hann lét af störfum 2022.
Jón Torfi tekur enn við nýjum skjólstæðingum.

Aðalviðfangsefni í dag
Legslímuflakk (Endormetriosis). Greining ráðgjöf og lyfjameðferð. Breytingaskeið; greining og meðferð. Blæðing eftir tíðahvörf og vefjasýnataka frá legholi. Snemmsónar og vandamál á meðgöngu. Greining fjölblöðrueggjastokka (PCO) og mat á bestu mögulegu meðferð. Miklar blæðingar, óreglulegar blæðingar og blæðingastopp. Áreynsluþvagleki og bráðaþvagleki. Legsig, blöðrusig og endaþarmssig. Greining og meðferð kynsjúkdóma og skimun fyrir frumubreytingum á leghálsi (frumustrok). Samstarf við frjósemisfyrirtæki í Grikklandi, Spáni og víðar. Einstaklingsmiðuð getnaðarvarnaráðgjöf. Gott samstarf við Kvennadeildina á Akranesi og Landspítala, Klínikina í Ármúla, Sunnu Frjósemi og Livio.

Hjörtur Haraldsson

 

Hjörtur útskrifaðist sem kandídat frá Háskóla Íslands 2010 og tók kandídatsár sitt á Akureyri. Hann hóf sérhæfingu sína sem kvensjúkdómalæknir í Óðinsvéum í Danmörku árið 2012 og hlaut sérfræðileyfi þaðan 2019. Meðfram sérnámi sínu vann hann víðs vegar á Íslandi, í Danmörku og Noregi þar sem hann tók vaktir á heilsugæslum og á deildum ýmissa sérsviða, svo sem svæfinga-, skurð-, bæklunar, geð- og tauga-.
Að sérnámi loknu var Hjörtur fastráðinn sérfræðilæknir á kvennadeildinni í Óðinsvéum til ársins 2021, sem hluti af blæðinga- og vöðvahnútateymi þess. Einnig var hann á þessum tíma hluti af transteymi spítalans, og þekkir hann vel til málefna trans karla og kvenna jafnt sem kvára.
Árið 2021 flutti hann með fjölskyldu sinni aftur til Íslands. Hóf hann þar stofurekstur sem kvensjúkdómalæknir, fyrst á Selfossi, síðar í Lækningu og nú í Læknastöðinni Hamraborg.


Aðalviðfangsefni í dag

Hann hefur á þeim tíma bætt við sérþekkingu sína m.a. hvað varðar PCOS, endómetríósu,  breytingaskeið og vandamál í skapabörmum. Hann tekur glaður á móti öllum einstaklingum með vandamál eða áskoranir sem heyra undir fag sitt.

Fjölþætt
viðfangsefni

Í læknastöðinni Hamraborg er að finna tvo kvensjúkdómalækna í fullu starfi sem hafa vítt svið sérhæfingar

Hafa samband

    Forföll

    Vinsamlega boðið forföll með skilaboðum í gegnum formið hér að ofan fyrir kl 16:00 daginn fyrir komu.
    Að öðrum kosti er lagt á forfallagjald (9.000 kr.)

    Finndu okkur á kortinu

    is_ISIS